Skilalýsing - Keilugrandi 5-7

Hönnuðir:

Aðalhönnuðir hússins eru A2F arkitektar. Stofan var stofnuð af Aðalheiði Atladóttur, arkitekt FAÍ og Falk Krüger, arkitekt FAÍ AKB. A2F arkitektar búa yfir mikilli reynslu á sviði mannvirkjagerðar og skipulags, á Íslandi og á meginlandi Evrópu og hafa sérhæft sig í hönnun á íbúðarhúsum. Fyrirtækið hefur unnið til fjölda verðlauna og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín.

Byggingarverktaki:

Alverk var stofnað árið 2007 af Aðalgeiri Hólmsteinssyni. Félagið hefur áður unnið með Búseta að stýriverktöku við Einholt og Þverholt (svokallað Smiðjuholt). Fyrirtækið sinnir framkvæmda- og ráðgjafarverkefnum í mannvirkjagerð.

Almennt um húsin við Keilugranda 1-11

Byggingarnar við Keilugranda 1-11 eru tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með alls 78 íbúðum í fjórum húsum. Íbúðirnar eru af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá 35 m2 smáíbúðum og upp í 117 m2 íbúðir. Við þróun á verkefninu var lögð áhersla á fjölbreyttar íbúðir í aðlaðandi umhverfi, þar sem gætt er að birtuflæði ásamt hljóð- og loftgæðum. Allt innra og ytra efnisval er af gæðum. Allar íbúðir á efri hæðum hafa svalir og íbúðir á jarðhæðum hafa sérafnotareiti.

Miðsvæðis á lóðinni rís hús undir hjólageymslu sem allir búar hafa aðgang að. Fyrir framan hjólahúsið er pallur með skyggni sem aðgengilegt er öllum íbúum, en þar er hægt að dvelja eða gera við hjól.

Lóð bygginganna afmarkast af þremur götum, Keilugranda til vesturs, Eiðisgranda til norðurs og Fjörugranda til suðurs. Gönguleiðir á svæðinu tryggja gott aðgengi að lóðinni og verður hluti þeirra með snjóbræðslu. Vel útfærð lýsing verður á lóðinni með hæfilegu birtumagni og þannig tekið tillit til nálægðar við íbúðir. Á milli húsanna á reitnum er gert ráð fyrir almennu útivistarsvæði samliggjandi við svokallaðan lýðheilsureit.

Garðrýmið er að mestu sameign allra. En út frá þeim íbúðum sem eru á jarðhæð eða næst aðkomuhæðum frá götum eru skilgreindir sérnotafletir sem eru með hellulögðu útisvæði, skjólveggjum og trjágróðri.

Frá öllum gangstéttum er hellulögð eða steypt göngusvæði að öllum inngöngum í stigahús, sorpgeymslur og önnur rými aðgönguhæða. Á lóðinni er lögð rík áhersla á að hafa aðgengileg hjólstæði nærri inngöngum íbúða. Á tveimur stöðum eru staðsett yfirbyggð sorpskýli. Annað er aðgengilegt frá Fjörugranda og hitt er aðgengilegt frá Keilugranda.Gætt er að góðu aðgengi neyðarbifreiða.

Sjötíu bílastæði eru á lóðinni og samtals fimm bílastæði fyrir hreyfihamlaða. Þau eru staðsett nálægt inngöngum í byggingar, þar af eru tvö stæði við Keilugranda 1-3 sem eru á inndregnu inngangssvæði á 1. hæð. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla verða á lóðinni, önnur á norðurhluta lóðar og hin á suðurhluta lóðar. Gott aðgengi er tryggt að þremur sorpgeymslum á vestur- og austurhlið ásamt sorpgeymslu sem aðgengileg er frá bílastæðum norðan byggingar við Keilugranda 1-3. Í öllum sorpskýlum og sorpgerðum verða niðurföll og tryggt verður aðgengi að spúlslöngum.

Keilugrandi 5-7

Byggingin er á þremur hæðum með alls 12 íbúðum: Fjórar fimm herbergja íbúðir og átta fjögurra herbergja íbúðir. Hún er brotin upp í fjórar einingar, en í hverri einingu eru þrjár íbúðir, ein á hverri hæð. Einingarnar eru annars vegar tengdar saman með stigagöngum og pöllum og hins vegar með tækni/geymslurými. Allar íbúðirnar hafa sérinngang. Gengið er inn í íbúðir á annarri og þriðju hæð frá annarri hæð. Á jarðhæð er inntaksrými og geymsluskápar fyrir allar íbúðir hússins. Hönnun er samkvæmt byggingarreglugerð og er ekki gert ráð fyrir lyftu í húsum númer 5-7. Aukin lofthæð er á 3. hæð og eru hljóðísogsplötur í lofti. Þar eru einnig háir gluggar sem auka birtuflæði. Í íbúðunum eru anddyri sem hægt er að loka.

Byggingarnar eru vel tengdar við útivistarsvæði lóðarinnar, en hægt er að ganga á milli húsanna á tveimur stöðum. Íbúðum á jarðhæð tilheyra sérafnotareitir til austurs eða suðurs. Íbúðum á efri hæðum hafa svalir.

Frágangur utanhúss

Þak:  Þak byggingarinnar er einhalla og hallar frá garðinum. Þakið er steinsteypt plata, einangruð og klædd með úthagatorfi.

Útitröppur og inngangspallar:   Útitröppur eru frá fyrstu og upp á aðra hæð. Þær eru staðsteyptar og kústaðar. Útitröppur eru forsteyptar einingar. Handrið og handlistar eru úr heitgalvaníseruðu stáli.

Útveggir:  Allir útveggir eru steinsteyptir og einangraðir að utan. Stærstur hluti veggja er klæddur ljósu báruáli, en sumir veggfletir á milli glugga eru klæddir með lerki og festir á álundirkerfi. Ein eining, auk hjólageymslu, er klædd dökku báruáli. Veggfletir á milli eininga þar sem útitröppur eru, eru klæddir lerki. Engir gluggar eru á þessum hliðum. Niðurföll þaks og svala eru utanáliggjandi á vesturhlið.

Gluggar/hurðir:  Ál-tré gluggar og ál-tré hurðir eru frá Glerborg, hvít að innan og dökkgrá að utan. Í gólfsíðum gluggum er gert ráð fyrir öryggisgleri í neðri hluta glugganna.

Svalir /verandir:  Svalir byggingarinnar eru forsteyptar og festar með stáli við burðarvirki hússins. Svalirnar hafa létta skjólveggi (hæð 1,8m og 1,2m). Svalirnar eru klæddar óbrennanlegu efni í flokki 1, sementsbundnum trefjaplötum. Íbúðir á jarðhæð hafa hellulagðar verandir og skjólveggi úr timbri (hæð 1,8m) á sérafnotareitum.

Lóð: Lóð verður fullfrágengin með göngustígum, lýsingu, grasi og gróðri. Sjá nánar almenna lýsingu.

Bílastæði:  Samtals eru 70 ómerkt bílastæði á allri lóðinni. Fimm bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða og þar af eru tvö undir inndregnum hluta jarðhæðar við Keilugranda 1-3.

Tvær hleðslustöðvar verða á lóð, ein norðan megin og önnur sunnan megin.

Frágangur innanhúss

Íbúðir

Gólf: Ljós (hvíttuð eik) harðkjarnaparket frá Quik-Step, grábrúnar flísar (taupe litur) á baði og anddyri. Stigahús íbúða á 3. hæð hafa flísar í anddyri, stiginn og pallur eru teppalögð.

Veggir:  Steypa og gipsveggir hvítir að lit, baðherbergi flísalagt með ljósum flísum.

Loft:  Steypa, hvít að lit.

Hurðir:  Hvítar sprautulakkaðar með húnum í burstuðu stáli.

Anddyri: Gólf eru flísalögð grábrúnar flísar (taupe litur). Skápar í anddyri (Nobilia frá GKS) ljósgráar hurðir og hliðar, með hillu og fataslá.

Eldhús:  Innrétting (Nobilia frá GKS) ljósgráar hurðir og hliðar með dökkri borðplötu og höldum í burstuðu stáli. Ofn, spanhelluborð og háfar frá AEG Ormsson. Útsog er frá eldhúsi. Gert ráð fyrir uppþvottavél í stærri íbúðum.

Baðherbergi: Forsteyptar baðherbergiseiningar. Flísalagt er í hólf og gólf, salerni með hæglokun. Innréttingar (Nobilia frá GKS) skápur undir vaski og á vegg, ljósgráar hurðir og hliðar með dökkri borðplötu og höldum í burstuðu stáli. Sturta með glerhurðum. Tengingar eru fyrir þvottavél undir borði og þurrkara ofan á borði.

Svefnherbergi: Fataskápar í hjónaherbergjum (Nobilia frá GKS), ljósgráar hurðir og hliðar. Parket á gólfum.

Sameign

Hitakerfi: Lokað ofnakerfi.

Rafmagn: Greinatöflur í íbúðum fyrir smáspennu og lágspennu. Síma og tölvulagnir á völdum stöðum, en möguleikar á fleiri stöðum. Sjónvarpsloftnet og lagnir, tenglar á völdum stöðum.

Neysluvatn: Heitt neysluvatn er upphitað kalt vatn með heitu vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur.

Loftræsikerfi: Útsog frá gluggalausum rýmum með mótorum á þökum. Ferskloftsinntök inn í íbúðir á bak við ofna.

Geymslur:  Sér geymsluskápar fyrir hverja íbúð eru í sameiginlegu rými fyrir miðju byggingar á jarðhæð, léttir stálskápar með lás. Sér hjólageymsla er fyrir nr. 5 og sér hjólageymsla er fyrir nr. 7, við enda hússins.

Gólf geymslurýmum verða vélslípuð og lökkuð,  epoxy kerfi Top-4000.

Póstkassar: Gert er ráð fyrir póstkössum á útvegg á milli húsanna við útitröppur.

Sorp:  Tvö sorpskýli (samtals 16 stk. 660l gámar) eru staðsett á lóð austan við húsið, þau eru sameiginleg með Keilugranda 9 og 11.

Önnur atriði

Vísað er til hönnunargagna (m.a. byggingarnefndarteikninga) varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni. Auglýsingaefni og þrívíðar skýringarmyndir eru eingöngu til hliðsjónar, komi upp misræmi eru samþykktar teikningar hönnuða gildandi. Almennt miðast skil hússins við vandaðan frágang og viðurkennd skil á nýju íbúðarhúsnæði.

Komi til framkvæmda kaupenda eftir afhendingu skal tekið fram að ekki er heimilt að skerða burðarþol, hljóðvist o.þ.h. eða hafa áhrif á húshluta sem tilheyra sameign hússins.

Í nýjum íbúðum getur verið mikill byggingaraki í byggingarhlutum. Þessi raki mun að jafnaði hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Allar íbúðir eru búnar vélrænni loftræstingu en til þess að hún hafi fulla virkni þarf að tryggja innstreymi lofts öllum stundum, í gegnum opnanleg fög. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörtslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.

Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en sem ekki er upptalinn í skilalýsingu þessari fylgir ekki.